01
Skýr kynning á þjónustunni
Kynning á þjónustuflokkum, starfssvæði og hvernig á að hafa samband eða óska eftir tilboði.
Heimili fyrirtækisins á vefnum
Hönnun og uppsetning á faglegri og einfaldri heimasíðu sem kynnir fyrirtækið þitt, sýnir fyrri verk og gerir viðskiptavinum auðvelt að hafa samband.
Frá 90.900 kr. án vsk. Hýsing frá 9.900 kr./mán.
Ein vönduð heimasíða sem sýnir þjónustuna, starfssvæðið og hvernig má hafa samband.
01
Kynning á þjónustuflokkum, starfssvæði og hvernig á að hafa samband eða óska eftir tilboði.
02
Myndasafn frá fyrirtækinu og rými fyrir umsagnir viðskiptavina.
03
Þú sendir helstu upplýsingarnar. Við mótum textann svo hann verði skýr og tilbúinn til birtingar.
04
Grunnstillingar fyrir staðbundna leit, síðukort og upplýsingar um fyrirtækið.
05
Við sjáum um uppsetningu léns, DNS, fyrirspurnarform og persónuverndarsíðu. Þú þarft ekki að snerta tæknihliðina.
Tvö verkefni fyrir viðskiptavini og eitt sýnidæmi.

Ræsting og iðnaðarþrif
Þjónustan er skýrt flokkuð og tilboðsbeiðnin áberandi, hvort sem húsfélag eða fyrirtæki á í hlut.
Raunverulegt verkefni fyrir viðskiptavin.

Sótthreinsun og háþrýstiþvottur
Sérhæfð þjónusta er sett fram þannig að húsfélög og fyrirtæki rati fljótt á rétta lausn og geti óskað eftir tilboði.
Raunverulegt verkefni fyrir viðskiptavin.
Heimilis- og handverksþjónusta
Sýnidæmi um hvernig ein einföld vefsíða getur kynnt marga þjónustuflokka fyrir iðnaðar- og þjónustufyrirtæki.
Skýrt umfang, enginn falinn stofnkostnaður og við sjáum um tæknina.
Einföld fyrirtækjasíða
Frá 90.900 kr. án vsk.
Fyrir það sem þarf umfram grunnpakkann.
Öll verð eru án vsk.
Aukasíða fyrir þjónustu
25.000 kr.
Ensk útgáfa
39.000 kr.
Uppsetning Google Business Profile
29.000 kr.
Viðbótaryfirferð
15.000 kr.
Stærri breytingar, nýjar síður, bókunarkerfi, netverslanir og flóknari samþættingar eru metin og verðlögð sérstaklega.
Frá fyrstu hugmynd að heimasíðu í loftinu.
Sendu stuttar upplýsingar um þjónustuna, starfssvæðið og markmiðið með nýju síðunni.
Við aðstoðum við texta og myndaval, hönnum síðuna og sendum þér drög. Tvær yfirferðir eru innifaldar.
Vefurinn fer yfirleitt í loftið innan 7–10 virkra daga eftir að efnið berst. Eftir birtingu sjáum við um hýsingu, viðhald og grunnvöktun.
Ertu ekki viss um hvað hentar? Sendu okkur skilaboð og við leggjum til næstu skref.
Eigin vefsíða gefur fyrirtækinu traustan stað á netinu sem þú stjórnar. Þar sér fólk hvaða þjónustu þú býður, hvar þú starfar og hvernig það nær í þig, hvort sem það finnur þig á Google, samfélagsmiðlum eða með meðmælum. Skýr vefsíða styrkir traust og gerir næsta skref einfalt.
Grunnpakkinn kostar frá 90.900 kr. án vsk. og endanlegt verð fer eftir umfangi verkefnisins. Þú fær verðtilboð áður en vinnan hefst og það verð heldur svo lengi sem umfangið er óbreytt. Ef þú vilt bæta einhverju við endurmetum við verðið og komumst að samkomulagi áður en sú vinna hefst.
Nei. Þú segir okkur frá þjónustunni, starfssvæðinu og því sem viðskiptavinir þurfa að vita. Við hjálpum þér að móta skýran texta sem hentar fyrirtækinu og síðunni.
Nei. Við hjálpum þér að velja lén og sjáum um tæknilega uppsetningu þess. Lénið er skráð á fyrirtækið þitt og greitt sérstaklega.
Minniháttar textabreytingar falla undir mánaðarlega umsjón. Nýjar síður, bókunarkerfi, netverslanir og flóknari tengingar eru metin og verðlögð sérstaklega.
Sendu nokkrar línur um fyrirtækið og verkefnið. Við svörum og leggjum til næstu skref.
Grunnpakkinn kostar frá 90.900 kr. án vsk. og umfangið liggur fyrir áður en vinnan hefst.
Við svörum yfirleitt innan eins til tveggja virkra daga og leggjum til næstu skref.